Sigurlína Erla<3

05.05.2008 13:23:55 / slina

Skólinn búinn=P

Jæja! þá er maður bara að fara að kveðja Akureyrinna á morgun:D8| þetta er búið að vera ótrúlega fljótt að líða þessi blessað önn,  og komið sumar:D

Byrjaði í prófunum á föstudaginn og gekk bara ágætlega, var svo í íslensku prófi áðan og gekk bara vel! Er núna alveg að deyja úr þreytu eftir helgina og nenni engan veginn að fara að lesa í sögu núna8| lesa einhverjar 100bls og e-ð bras!
Gerði heiðarlega tilraun til að byrja áðan en var búin að lesa einhverjar 3 bls og sofnaði bara yfir því, Vaknaði svo við það að það var einhver að læðast hérna inní herb. til mín og voru það Ragnheiður og Gunna Beta. Ragga ætlaði að vera geggjað sniðug og tók af mér bókina, færði tölvuna mína frá ég var alveg ný vöknuð og fattaði ekki neitt, svo kippti sænginni af mér og tók sig svo til að kasta í mig einni vatnsblöðru, en sem betur fer sprakk hún ekki:D hún gerði allavega alveg 3 tilraunir meðan ég lá hérna uppí rúmi en blaðran vildi bara ekki springa sem betur fer:P
En svo fór ég e-ð inna bað og var að láta vatn i eina blöðru og notaði Ragga tækifærði og henti henni í bakið á mér og þá sprakk hún!

En váaa ég er bara að koma alveg heim á morgun og tek 2 síðust prófin mín á Króknum:P næringafræði og íþróttagrein:)

Ætla að reyna að koma mér í lærigírinn:P og lesa e-ð í þessari sögu:)


» 5 hafa sagt sína skoðun

07.04.2008 17:28:57 / slina

Tími á blogg?

Jæja.. mánuður í dag frá síðasta bloggi?:D og er þá ekki tími á blogg núna? hvað segiði um það? á maður kannski að fara að taka sig á?8)

Ég ligg nú bara hérna uppí rúmi á vistinni með tölvuna fyrir framan mig, reyna að koma mér í það að læra í ensku og svo undir íslenskupróf sem ég er að fara í á morgun! en letin er í hámarki8|

Helgin var bara skemmtileg eins og þær eru alltaf:) best í heimi að komast alltaf í Skagafjörðinn á föstudögum:D
Var komin í Varmahlíð um 3 og kom þá mamma og náði í mig og ég keyrði svo í krókinn;) brunaði beint í Skaffó til Fúsa að ná í flakkarann sem ég var að kaupa:) fór svo bara heim og síðan í sveitina til Sigga um 7:d

Eftir mat kom svo Loftur Páll og ég, Siggi, hann og Elvar fórum að spila póker:P sem var mjög gaman:D

Laugardagsmorguninn mætti ég svo bara í vinnuna í Skaffó og vorum við Ása ekkert smá duglegar og tókum til í skónum og fullt maður;) eftir vinnu beið ég svo bara eftir að Siggi og Kári kæmu frá Akureyri því þeir voru að keppa í Boganum, þegar þeir komu þá fórum við í sveitina:D

Sunnudaginn fórum við svo bara í fjárhúsin þegar við komum okkur á lappir. Fórum svo í krókinn rétt fyrir 1 því Siggi og Elvar voru að fara að vinna þannig ég fór bara heim og fór svo til Akureyra um 4 með mömmu og part af Rökkukórnum því þau voru að fara að syngja hérna fyrir norðan...:)

Svo beið skólinn manns bara í morgun sem ætlaði að líða mjög hægt en það slapp, bara ósköp venjulegur mánudagur e-ð!

En talandi um það eru bara 16 skóladagar eftir:D og vá hvað ég get ekki beðið að komast heim í sumarfrí:D:haha: 
Prófin byrja 2. maí og hvað það verður gaman þegar þau eru búin:D
Kem alveg heim á Krók 8. maí:) ohh hvað það verður gott:D

Click for Full Size View

En ég nenni ekki að hafa þetta lengra núna! ætla að reyna að læra e-ð!
Lofa bara að blogga fljótlega aftur;)


» 4 hafa sagt sína skoðun

07.03.2008 19:56:51 / slina

Heima er best=D

Heima er best=D

Jæja, þá er maður kominn heim á Krókinn í helgarfrí:) mjög gott og gaman!:D síðasta helgarfríið fyrir páskafrí:D váá hvað ég get ekki beðið eftir að komast í þetta blessaða páskafrí:D nenni ekki meiri skóla í bili!:S:haha:

Maður þarf að eyða þessu föstudagskvöldi heima að passa bræðurna því mamma og Gísli eru að fara á árshátíð starfsmanna í Árskóla, þannig þau verða alveg blindfull og vittlaus:D neii segi svona:D var að enda við að steikja hamborgara handa þessum drengjum og núna sitja þeir alveg stjarfir fyrir framan sjónvarpið að horfa á Narnia, alveg endalaust stuð.

Sigurður Heiðar dreif sig bara í æfingarferð suður þannig maður hittir hann ekkert fyrr en föstudaginn eftir viku!:S:( sem mér innst náttúrulega ekkert gaman!

PÁSKAFRÍÍÍÍ NÆSTA FÖSTUDAG:D 
vááá get ekki beðið:P og verð meira að segja ein heima alla pásana:P8)
Hjúin eru að fara til Kanarí á þriðjudaginn þannig ég þarf að hugsa um heimilið, bræðurnir verða hjá pabba og Þórey verður að vinna held ég mest alla páskana fyrir sunnan:)

Síðasta helgi var mjög skemmtileg:D
Árshátíðin í FNV var bara snilld og ballið gott líka:)

Þessi helgi verður vonandi líka bara ágæt þó Sigurður verði ekki til staðar, ég og Hrafnhildur gerum bara e-ð af okkur fyrst karlarnir eru þarna á suðurlandinu;) þarf reyndar að vinna í Skaffó kl 10 í fyrramálið, en það er allt í lagi:D ég og Ása skemmtum okkur alltaf saman í vinnunni:D það vantar aldrei neitt uppá það:P


Ég og Siggi á árshátíðinni:):*

En ég ætla að fara að ganga frá eftir matinn:)
finna svo e-ð sniðugt í sjónvarpinu að horfa á eða e-ð;) svo maður deyji ekki alveg úr leiðindum:)
Svo kemur Hrafnhildur kannski til mín í kvöld og við gerum e-ð sniðugt;)


ég og tóta sys:D:*


Ætla að hætta þessu núna og fara að gera e-ð af viti!:)
þið kannski skiljið eitt komment eftir þegar þið lesið þetta;)
bææ:D


» 14 hafa sagt sína skoðun

05.03.2008 15:18:11 / slina

Afmælisblogg!:)

Hún á afmæli í dag,
hún á afmæli í dag,
hún á afmæli hún Elín,
hún á afmæli í dag,
hún er 16 ára í dag,
hún er 16 ára í dag,
hún er 16 ára hún Elín,
hún er 16 ára í dag:D

Ég ætla að henda inn einu bloggi hérna í tilefni dagsins:D Því það er ein undur fögur snót í Skagafirðinum sem á afmæli í dag og ber hún nafnið Elín Árdís:)=**

Svona lítur þessi elska út fyrir þá sem vita það ekki:*

Vonandi eru búin að eiga góðan dag í dag og verður hann vonandi góður áfram:D

í svíþjóð í sumar:)

Erla Björt Björnsdóttir, Ingunn Kristjánsdóttir, Elín Árdís Björnsdóttir

VK
Flott á því að keppa í sundi í denn;)---->

litla sæta barn!:)

Ég vildi bara óska þér enn og aftur til hamingju með daginn elskna mín:):*
Þykir óendalega vænt um þig:):*
Sakna þess að geta ekki verið meira með þér! en í sumar þá gerum við e-ð skemmtilegt saman:D:**

Afmæliskveðja:
SigurlínaErlaMagnúsdóttir!:)

Nokkrar myndir af árhátíð FNV í myndasafninu;)


» 3 hafa sagt sína skoðun

28.02.2008 09:31:00 / slina

kannski maður skelli inn einu bloggi loksins!:)

Kannski ég klári að blogga þetta blessaða blogg sem ég byrjaði á í gær en nennti ekki að klára því ég vissi bara ekkert hvað ég átti að skrifa:S
    Blogga kannski e-ð að viti loksins, eða svona reyna það allavega:)

Var að koma úr skólanum núna, mætti í lífsleikni kl 8:15 og vorum bara inní í 10 mín orsome þannig ég og Sylvía ákváðum að labba bara niðrá vist í staðinn fyrir að hanga uppí skóla í rúman klukkutíma:) þannig ég ákvað bara að leggjast uppí rúm og blogga e-ð!

    Ohh byrjar þetta fólk að ryksuga þegar maður ætlar að reyna að sofna smá:O váá hata það! byrja alltaf að ryksuga gangana kl 9 á morgnanna þegar maður ætlar að reyna að sofa aðeins lengur því maður þarf ekki að mæta í skólann8|

Fór heim á krókinn á miðvikudaginn síðasta því það var frí í skólanum á föstudeginum og ég skrópaði í þessum 2 tímum sem ég átti að vera í á fimmtudaginn þannig ég fékk bara langa og góða helgi heima:D sem var ekkert annað en bara mjög gott og gaman!:)

    Var svo bara alla helgina í sveitinni eiginlega:), nema fór að vinna á laugardagsmorguninn í Skaffó með Ásu:) og það klikkar náttúrulega aldrei:D alltaf jafn gaman!:) Reyndar var bara ekkert að gera þannig við vorum bara e-ð á chillinu þarna og hofa a austurdal og svona;) það var bara mjög fínt!
Valli kom svo kl 4 og náði í mig í skaffó og tók mig með sér í blómaskálann og var að kaupa blómvendi handa Hrafnhildir og mömmu sinni í tilefni konudagsins sem var á sunnudaginn;) ekkert smá góðhjartaður maður:D
Fékk svo að sitja með í nesið:P

Nenni varla að blogga meira um helgina:) þetta var samt geggjað góð og skemmtileg helgi:D skemmdi ekki að hafa hana svona langa:P fékk svo 6 rauðar rósir í tilefni konudagsins á sunnudaginn þegar Siggi kom heim úr vinnunni;):*

    Svo er það bara föstudagur á morgun:D og það segir mér að það sé árshátíð í FNV:D váá get ekki beðið:P og svo Palla ball á eftir:P hlakka svoooo til!:D:haha: og Þórey sys er að koma heim;) þannig maður hittir hana:)

Maður þarf svo bara að mæta í einn tíma á eftir og fer svo í tveggja tíma eyðu frá 11:20-14:45:P það er ágætt!;) kannski maður leggi sig bara eða e-ð:)

    Er bara að spjalla við Kidda á msn núna því hann er örugglega sá eini sem er vakandi núna á msn:P, hann fékk líka ágætan svefn í gær sagði hann mér, sofnaði kl 8 í gærkvöldi og svaf í alla nóttt:D ekki slæmt það! úthvíldur fyrir helgina:D

En heyriði ætla að henda þvotti í þvottahúsið og gera e-ð að viti svona áður en ég fer í tíma!;) er hætt þessu bulli!
    
    Veit ekkert hvaða mynd ég á að láta í þetta blogg!:S

                                            SigurlínaErlaMagnúsdóttir!


Fann eina:D:*





» 6 hafa sagt sína skoðun

15.02.2008 20:39:12 / slina

Blogg jáa!

Maður situr hérna í stofunni í  Raftahlíð 30 á Sauðárkróki og er alveg að fríka út!:D og það er mjög ánægjulegt að vera bara komin heim á krók:P
Er að fara að vinna kl 10 í fyrramálið í Skaffó og svo er bara stefnt á það að fara útí sveit eftir vinnu:D:)

En vááá ég er engan veginn að nenna að blogga núna:S langar bara að fara út að flippa e-ð!:P er alveg í ótrúlega góðu skapi;) sérstaklega á miða við í gær og fyrradag:|.. vááá ég var svo brjáluð að ég var næstum því búin að henda tölvunni minni í gólfið:S.. þannig er mál með vexti að ég var að skrifa ritgerð í íþróttafræði og þegar ég var búin og var að fara að senda hana til kennarans þá hvarf hún bara:^):evil: og ég var ekkert smá bitur! og ég þurfti að byrja mest allt uppá nýtt:S og það var ekki gaman!8|

Ég fór bara í það að gera hana uppá nýtt í gær og kláraði hana kl 1 í nótt þegar ég kom loksins uppá vist eftir söngkeppnina sem var uppí skóla;) og það var agalegt stuð:P

En heyriði Steinunn frænka var að hringja og ég þarf að hlaupa uppeftir til hennar og hjálpa henni e-ð;)

þannig þetta verður ekkert lengra núna:) og þetta blogg SÖKKAR!:D

    Blogga bara fljótlega aftur:P
-Sigurlína kveður:P


» 1 hafa sagt sína skoðun

06.02.2008 17:19:27 / slina

Engar spangir lengur!:D

Aðallinn þessa dagana er að mínar blessuðu spangir sem ég var með í 2 ár og ca 3 mánuði eru loksins farnar:D:D:haha::haha:


nýýtt! og ég kann ekki að brosa!                                í denn!

ohh ég var búin að blogga fullt og það datt út!:frown::|
þannig ég ætla að reyna aftur! nenni því samt varla:S

En jáááá ég er mjög sátt að vera loksins laus við þessar blessuðu spangir þó það sé geggjað skrítið!:D allt í einu komin með ótrúlega beinar og fínar tennur:P:D

Ég og Sylvía vorum svo að telja hvað væru margir skóladagar eftir hérna í VMA og það eru ekki nema 52 fyrir utan prófin í maí:D váá hvað þetta er fljótt að líða:P sem er náttúrulega bara gott:D:haha: get ekki beðið eftir að komast í sumarfrí:D 

Helgin var skemmtileg eins og þær eru vanalega:D alltaf jafn gaman að komast á krókinn í helgarfrí8)

Á föstudaginn fór ég beint til Hrafnhildar þegar ég kom í krókinn og við fórum í Hlíðó að kaupa taco og tilheyrandi til að elda:) svo komu Lilja og Halla í mat:D ótrúlega góður matur hjá okkur;) Svo kom Óli Einar og fórum bara e-ð að chilla og spiluðum rummikubb og hver haldiði að hafi unnið?;) Sigurlína auðvitað:P
Svo komu Valli og Siggi þegar þeir voru búnir á æfingu en fóru svo drengirnir svo að torfærast e-ð uppá nöfum meðan við stelpurnar fórum bara að horfa á mynd:P
Svo fórum við Siggi með Kára í nesið og fórum bara að sofa!:)

Laugardaginn fórum við svo bara í Krókinn og drengirnir fór á ak að keppa! Þannig ég og Hrafnhildur fórum bara heim til hennar að chilla e-ð:) fórum reyndar út og mokuðum pallinn og uppúr heitapottinum og allt þar í kring svo strákarnir kæmust í pottinn þegar þeir komu frá ak;) þetta var samt örugglega meira bras en margir halda:D svo var allt frosið og við notuðum ýmsar aðferðir til að reyna að þýða þetta:) en svo tókst þetta hjá okkur að lokum;) enda erum við svo magnaðar:D á meðan svaf Halla Mjöll værum blundi í sófanum inni;)

Pöntuðum svo pizzu eftir þetta erfiði og horfðum á þætti af flakkaranum og steinsofnuðum:)
Svo komu Siggi, Valli, Kári og Rúnar og skelltu sér í pottinn:) sem betur fer! við hefðum ekki orðið sáttar ef þeir hefðu ekki gert það!;)

Mig langar líka svo mikið í helgin NÚNA!:D get ekki beðið:P 2 þorrablót um helgina:) í Hegranesinu á föstudaginn og svo sameiginlega á laugardaginn í íþróttahúsinu á króknum:D:D það verður SVOOO gaman:D:P

En svo var ég búin að lofa Rúnari Má að koma inná heimsfræga leikinn sem strákarnir voru að skemmta sér í  í Ríp þarsíðust helgi:D gekk út á það að þeir sástu í stólum á móti hvorum öðrum með ágætt bil á milli sín og drippluðu litlum bolta í gólfið og voru a reyna að láta hann lenda í pungum á hvor öðrum og ef það skeði þá fengu þeir 1 stig:D haha! og þeir skemmtu sér alveg konunglega í þessu á meðan ég og Hrafnhildur sátum bara og hofðum á!:D:)

En hvað á maður svo að gera í kvöld??hmm.. kannski maður hafi það bara rólegt og fari snemma að sofa:P enda mjög skemmtileg helgi framundan:P:D:!:

En ætla láta þetta duga núna:P blogg bara fljótlega aftur;)

Sigurlína spangalausa kveður:P

View Full Size Image


» 23 hafa sagt sína skoðun

29.01.2008 18:45:24 / slina

helgiiiiiiiiiiiiin!

Kannski ég skelli inn einu stuttu bloggi hérna:) svona því ég veit ekkert hvað ég á að fara að gera núna!:S

Til hamingju með daginn Edda og Halla elskurnar mínar!=**:D:D

Við liggjum bara hérna 3 uppí rúmi og erum ný komin úr mat:) og ég ligg eins og afvelta rolla ég er svo södd8|:$

Svo eru við að spá í að fara í bíó kl 20 á brúðgumann:P held hún sé geggjað góð:D

Helgin var bara skemmtileg:D kom heim á krók um 5 og fór beint á N1 til að hitta Þóreyju systir:D 3 vikur síðan ég sá hana:o! Fórum svo aðeins á rúntinn og niður í hesthús til Guðrúnar og Bjögga bróðir Fúsa!:)

krútti hundurinn þeirra!:D

Fór svo heim að horfa á mynd og bíða eftir að Siggi væi búinn á æfingu:) fór svo bara með honum í sveitina:D sem var bara mjög gaman!

Svo fór ég að vinna kl 10 í Skaffó með Ásu og það var bara gaman:D alltaf gaman að vinna með Ásu;)
Eftir vinnu keyrði mamma mig svo aftur í Ríp og við chilluðum bara e-ð og svo komu Kári og Loftur:) svo eftir smá komu líka Hrafnhildur, Valli og Rúnar Már!:)

Elvar bakaði pizzu og læti:P

Sunnudaginn fórum við svo bara út í fjárhús og gefa kindunum og brasa e-ð:)
Svo fórum við Siggi með Kára í krókinn því þeir áttu að fara á ak til að keppa! en það var svo brjálað veður að þeir hættu við! En ég var svo bara heima í smá tíma og svo keyrðu Þórey og Fúsi mig í Varmahlíð og ég fór með Hjalla og Signýju hingað á ak!

Það var reyndar pínu brjálað veður en við komumst allavega heil hingað á ak þannig það er í lagi!:)

En vá mig langar í föstudag:O nenni ekki meira í skólann!:S

Sakna Sigga svo mikið:(:cry:
langar heim!:(

Ég og Silvía vorum að telja í íþróttagreinstímanum á mánudaginn hvað væru margir kennsludagar eftir af skólanum og það eru ekki nema 60:P það er ekki svo mikið!:D sem betur fer!

Svo losna ég við spangirnar næsta þriðjudag!:P váá get ekki beðið:D það verður awesome:D 

en ætla að enda þetta með ofursvölum myndum af Magnúsi bróðir:D



» 12 hafa sagt sína skoðun

23.01.2008 12:51:07 / slina

Titill


Sakna afa:(:cry:

 Fólk er farið að biðja mig að gera e-ð sniðugt á þessari síður hérna! en ég veit bara ekki hvað ég á að gera!:S hugmyndir??;)

Ég ligg bara hérna inní herbergi á vistinni eins og vanalega þegar ég er ekki í skólanum!:) það er svosem alveg ágætt að taka því svona rólega:P bara 2 dagar eftir af þessari skólaviku:P það er nú gott:D

Þórey sys að koma í Skagafjörðinn svo maður sér hana um helgina!:D ekki búin að sjá þá mannesku síðan 6.jan:O það er nú svolítið langt síðan svona miða við ég hef yfirleitt séð hana á hverjum degi..! En hún er sest að í Gunnarsholti á Suðurlandi svona fyrir þá sem vita það ekki að temja hross!:)

 

 

Svo er Signý að koma í kvöld:D:haha: það verður nú gott að fá loksins herbergisfélagann sinn:D þá hefur maður örugglega e-ð meira að gera og þá líður tíminn hraðar:P8)

Ég veit samt eiginlega ekkert hvað ég á að blogga um, hmm..:$

Helgin var bara mjög skemmtileg eins og alltaf:D, fór heim og mamma&Gísli elduðu þessa ótrúlegu góðu kjúklingabringur fylltar með ótrúlega góðum osti:D
Fór svo í Hólatún 6 til hennar Hrafnhildar og við fórum að skoða utanlandsferðir og bíla;) erum mikið að spá í að panta okkur bara eina ferð út:P það væri nú ekki leiðinlegt:D

Laugardaginn fór ég svo bara í Grenihlíðina og var að skanna inn myndir síðan ég var lítil og e-ð:) beið svo bara eftir að drengirnri væru búnir að keppa á ak og fór svo með Sigga í sveitina:D og það var mjög gaman;)

Svo er ég að fara í mat til Halldóru frænku í kvöld:P  svona til tilbreytingar að gera e-ð annað en hanga bara hérna inná vist:)

Leikur á eftir í hanboltanum.. og hvernig ætli það eigi eftir að ganga?? hmm.. það er spurning!

En alltaf hlakkar mig jafn mikið til að komast heim um helgar:D það er alveg ótrúlegt:P bíð bara eftir að það komi föstudagur:D:P:D
Svo er föstudagurinn núna Bóndadagur:P og er búin að panta gjöf handa Sigga:D ótrúlega flott:P

En ætla ekkert að hafa þetta lengar núna:P

Blogga bara aftur á morgun eða e-ð;)
Farin í kaffi með Hjalla og Röggi!

-SigurLínaErlaMagnúsdóttir-


Hver ætli þetta sée?:D


» 16 hafa sagt sína skoðun

17.01.2008 21:22:35 / slina

Mamma heimtar blogg!!=)

 Og hún fær það:haha:;)

Ég ætla að blogga svona í tilefni þess að Ísland tapaði svona glæsilega fyrir Svíum núna rétt í þessu!:^)8|..:$ var hérna hjá Gunnu og Röggu að horfa! en ég gafst nú bara uppá að horfa á þetta dót! þetta var ekkert að gera sig!:S ég og Aldís frænka vorum bara að spjalla um þennan blessaða leik á msn og um hvað hann myndi sökka mikið!:o:D en það kemur vonandi bara næst!;)

Þessi vika er búin að líða mjööög hratt sem mér finnst mjög ánægjulegt:P þá kemst ég fyrr heim:D:D:D váá ég elska svo mikið að það sé föstudagur á morgun:D8)

Er reyndar í skólanum til 14:40, fyrst í sögu, sálfræði, næringarfræði og að lokum ensku!:):S.. en þetta verður bara fljótt að líða:P vonandi:D..

þarf svo að stoppa í Varmahlíð í 1-2 tíma því ég er að fara í háls og spjaldhryggjameðferð til SigguSveins:)(tengdamömmuÖllu);) svo þetta brjósklos lagist vonandi einhverntíman:D vonandi þetta geri e-ð gang;).. því þessi helv bæklunarlæknir er ekki að gera sig8|:whut: fór í sneiðmyndtöku 10.des og hann er ekki ennþá búinn að drullast til að hringja og segja hvað kom út úr þessu!:klikk: þannig ég veit bara ekkert hvað ég á að gera!:S

Fór aðeins á útsölur í gær og keypti mér disel buxur í 17 og peysu í fargo:P aðeins að eyða þessum peningum svona;) enda á ég nóg af þeim maður:D heheh..:)

Lífið hérna á Akureyri er bara farið að ganga vel:) þetta er allt að koma;) búin að kynnast alveg ágætlega mikið af fólki og svona:) þannig þetta gengur allt mun betur8):P

Svo kemur Signý í eina nótt á sunnudaginn:D það verðr nú gaman;):D:* en fer samt aftur á mánudaginn:( en kemur svo aftur 23.jan og fer ekki aftur:P:D það er mér mun ánægjulegt:D

En jáaa það er víst herbergisskoðun á morgun þannig maður þarf aðeins að þrífa inná baði og e-ð í kvöld kannski bara!:)

Og ég get ekki beðið að komast heim á morgun:D oohh það er alltaf svo gaman að koma heim þegar maður er ekki búin að vera þar:P:D
Hitta Sigga og skella sér í svetina:P:D það er best:D:**

Losna við spangirnar eftir 19 daga:D og get ekki beðið maður:P búin að vera með þetta í rúm 2 ár!:$:!:
og þetta er sem betur fer að fara að taka enda:)

Heyrðu.. ég ætla að hætta þessu svo þetta verði ekki svona langt eins og síðustu blogg! fólk nennir ekkert að lesa þetta maður!:P:o

Þannig ég er hætt:P læt kannski einhverjar sniðugar myndir ef ég finn;)
Hata samt að eiga ekki myndavél! og eiga engar nýjar myndir!:S

Skagafjörðurinn á morgun:D:D
ÓÓJESS!:P

Slína kveður8)


Siggiminn=*


Magnús bróó sem er fæddur til að vera viltur!:)














 Kanarí páskana 07:P

 

Nenni ekki að láta fleiri myndir:P
Ætla að fara að rugl e-ð á msn:)
bæææ:D8)


» 20 hafa sagt sína skoðun

14.01.2008 20:27:58 / slina

Blogg, Blogg=)

Kannski maður skelli inn hérna einu bloggi svona eftir helgina:) og maður kominn hingað á akureyri eftir mjög góða og skemmtilega helgi heima:)

Ég mætti bara í skólann kl 08:15 á föstudaginn eftir að ég var næstum því dáin úr hlátri því þegar við komum út þá var búið að vefja örugglega 8 klósettpappírsrúllum utan um bílinn hans Finns:D og satt að segja var hann ekkert mjög sáttur:D en þetta var samt MJÖG fyndið þótt Finn hafi ekki fundist þetta mjög sniðugt:) og svo var ég alveg í skólanum til 14:40 og gat þá loksins lagt af stað heim:D:D, ég fór með Sindra á hans flotta kagga og Jakob fékk líka að sitja í;) vorum komi í varmahlíð um 4 og þá komu mamma og Magnús bróðir og náðu í mig:)

Og þá komst ég loksins í krókinn:), fór bara heim og beið eftir að Siggi og þeir væru búnir á æfingu og svo náðu þeir í mig og við skelltum okkur á körfuboltaleikinn í íþróttahúsinu, ég, Siggi, Valli, Hrafnhildur og Elvar:) þetta var alveg ágætisleikur  98-94 fyrir Tindastól sem voru að keppa við ÍR..:) Hitti þar Elfar Má sem spurði mig e-ð út í hvernig Finnur hefði það og sagði mér svo að það hefður verið hann, Siggi Kúskur frændi, Siggi Vindur, Svenni og Davíð sem skelltu sér hingað á akureyri á fimmtudagsnóttina kl half 3 og ákváðu að stríða Finn aðeins og láta pínu pappír á bílinn hans Finns:D 

Þegar leikurinn var búinn þá fórum við á rúntinn og skemmtum okkur e-ð:), svo fóru við Siggi bara heim og horfðum á Dodgeball og sofnuðum reyndar bara yfir henni :) sem var allt í lagi! vöknuðum svo þegar hún var að enda:)

Siggi fór svo að vinna kl 7 í dögunn og ég svaf bara aðeins lengur og fór svo að vinna í Skaffó kl 10:), það var ágætt:) fékk að vinna í skónum og því með Ásu:D;) alltaf gaman að vinna með henni:D fór svo bara heim og var bara e-ð að brasa með fjölskyldunni:) svo um 8 þó fór ég til Hrafnhildar og biðum bara eftir að Valli kæmi að ná í okkur og við fórum í sveitina:) Og Valli sem hélt að ég myndi aldrei þora að fara í Ríp heim til Sigga:) en jú auðvitað:D

Horfðum svo bara aðeins á sjónvarpið þangað til Elvar, Kári og Loftur Páll komu og þá skelltum við okkur í Gettu betur spilið sem var bara mjög fínt, ég var spyrillinn og lét drengina 4 spreyta sig;) og Kári fór svo með sigurinn að lokum:) Svo kom Ólöf Bára heim sem er litla systir Sigga og Elvars:), ekkert smá mikið krútt:D var dálítið feimin en svo þegar við vorum að fara að sofa þá fór hún aðeins að spjalla við mig:)

Á sunnudagsmorguninn komu svo Valli, Hrafnhildur og Kári og náðu í okkur því strákarnir voru að fara að keppa hérna á akureyri kl 14:15:) og þurftu að mæta um 11 á krókinn,
Lögðum svo af stað til akureyra, auk þess að Rúnar Már og Bjarni Smári bættust í hópinn:)

Eftir leikinn fórum við svo á Greifann og fengum okkur að borða:) sem var bara mjög gott:) þegar við vorum búin að borða fóru krakkarnir bara heim og mig langaði ekkert smá að fara með þeim heim en ég var eftir á vistinni:( langaði samt mikið að fara heim!:|

Mætti svo bara í skólann í morgun á Sálfræði sem var svosem alveg ágætt en kennarinn er samt frekar mjög spes:S:D en það slapp alveg! var svo í skólanum til 16:10 og fór þá með GunnuBetu og Röggu í pennan að kaupa e-ð skóladót:)

Núna ligg ég bara uppí rúmi að blogga þetta blessaða blogg og horfa á landsleikinn í handbolta;) og ísland er að vinna eins og er:P 27-22:) vonum bara að þeir haldi þessu:P

En þetta var mjög skemmtileg helgi og gott og gaman að hitta Sigga:):* og þau öll;)

Bíð svo bara eftir að næsta helgi komi:) svo ég geti farið aftur heim:D

En ætla að klára að horfa á þenna leik:)

nenni ekki meir:D

Finna mér svo e-ð skemmtilegt að gera á eftir svo tíminn líði hraðar:D

Sigurlína kveður:)

Hjalli frændi kominn í heimsókn þannig við ætlum að fara að horfa á mynd ;)

bææ:D:**

Komment:P


Hulda frænka:)


ég og Elín elskan<3:* sakna þín:(


» 17 hafa sagt sína skoðun

08.01.2008 15:47:45 / slina

Akureyri já!:)

Jáa Fúsi heimtar blogg þannig ég ætla að blogga fyrir hann:D

En þá er maður sestur að á heimavistinni á Akureyri og hafin nám í Verkmenntaskólanum:) náði í stundatöfluna mína í gær og það fyrsta sem ég þurfti að gera var að breyta henni!.. var búið að láta 2 áfanga á hana sem ég var búin með og e-ð dót.. þannig ég fór bara í það að breyta henni:) sem var ekkert mál, skráði mig í staðinn í áfanga sem ég gæti verið með Signýju í tíma svo ég myndi þekkja einhverja:)

Svo þegar það var búið í gær þá fórum við niðrí bæ og versla fullt af dóti inní herb. okkar þannig það er farið að líta alveg ágætlega út:D.. keyptum líka 3 gullfiska í viðbót í búrið;) Ég, Signý og Hjalli náðum að eyða nokkrum þúsundköllum í þetta dót:P það var svosem alveg ágætt bara:) herbergið að verða mun heimilislegra en það var;):)..

Höfðum það svo bara rólegt í gærkvöldi og fórum bara uppí rúm og horfðum á Hairspray:D alveg ágætis mynd bara:) Svo náði ég loksins að sofna að vera 1:)

Labbaði svo í skólan með Röggu í morgun um hálf 10 :) hún hjálpaði mér svo að rata í stofuna sem ég var að fara í :) þannig þetta reddaðist bara allt;) og gekk bara ágætlega:) þetta lítur svo bara ágætlega út sýnist mér allt saman!.. á vonandi bara eftir að ganga vel!:)

Skruppum svo aðeins niðrí bæ í hádeginu og ég fór í símann til að láta virkja 3G dótið í símanum mínum þannig ég get farið að tala við fólk og séð það;) þar að segja þegar það er hérna á Akureyri eða í Reykjavík:) ekki er það hægt á króknum:(:).. en það kemur bara!:)

 

Og núna er Signý farin á Blönduós því hún þarf að vera í svona verknámi og þarf að vinna á Sjúkrahúsinu á Blönduósi í 2 vikur þannig ég er bara ein í herbergi á meðan!:S..

Ligg bara þessa stundina uppí rúmi í herb. mínu 5221 að blogga þetta leiðindablogg!  Og get varla beðið að komast aðeins heim aftur á föstudaginn og hitta fólkð heima:):*

En ætli ég láti þetta bara ekki duga í bili;)
kemur annað fljótlega aftur:)
þegar ég finn e-ð sniðugt til að blogga um!

-Sigurlína Erla!
:D:)


» 9 hafa sagt sína skoðun

04.01.2008 21:19:27 / slina

árið 2007!!

á maður að gera árið 2007 upp?!?:)
Þetta er búið að vera svona sæmilegt ár! ótrúlega fljótt að líða!:O
Reyndar mjög mörg áföll í minni fjölskyldu!:S.. vonandi verður þetta aðeins betra!:)
 

hefurðu átt gott ár?
þetta er búið að vera svona ágætt ár bara!:)

hvað hefur verið þitt stærsta afrek?

tekið eitthver próf, náð?
ég er búin að taka fullt fullt af prófum og náð öllum, sæmrændu líka!

búin að eiga afmæli?
já átti afmæli 11.okt!

verið í fríi, farið í ferðalög?
jájá nokkur frí og fór 3x til útlanda!:)

hvert, hvenær?
Kanarí um páskana, Danmerkur skólaferðalag í maí og Svíþjóðar í fótboltaferð í júlí=) allt geggjað gaman!:)

keypt eitthvað dýrt?
keypti mér tölvu..

verið í vinnu?
vann á shell-sport og skaffó!

tekið stórar ákvarðanir?
njaa.. ekkert svo!

misst vin eða einhvern annan nákominn?
já afa:’( (L)

hitt einhvern æðislegan?
:):*

eignast nýja vini?
já búin að kynnast fullt af nýju vinum:*

flutt?
bara frá Raftahlíð í grenihlíð og Grenihlíð í Raftahlíð!

skipt um skóla?
já úr grunnskóla í FNV!

prófað eitthvað nýtt?
alltaf að prófa e-ð nýtt!

verið meira glöð en döpur?
já ég held það bara!

eignast óvini?
jaa, nei!

hvaða tónlist mun minna þig á þetta ár?
engin sérstök!

hvaða myndir hefurðu séð í bíó þetta ár?
þær voru alveg nokkrar!

hvaða kvöld var það besta?
búin að eiga fullt af góðum kvöldum!

en það versta?
20.júní!

besti dagur?
margir góðir, enginn sérstakur held ég!

versti dagur?
20.júni!:(

besti mánuður?
ágúst, held ég bara!

versti mánuður?
partur af júní! Svo enginn sérstakur!

var sumarið skemmtilegt?
Það var geggjað!:P

þú og einhver annar orðnir betri vinir?
jáa;)

misst einhverja vini?
nei ekki misst neina! Sem betur fer!

hversu marga hefurðu kysst þetta árið?
fullt af fólki!

lentiru í ástarsorg?
neii eða jú samt!

búin að gera einhver plön fyrir árið 2008?
nei! Það er e-ð lítið um plön eins og er!

hversu marga háraliti hefurðu haft þetta ár?
búin að halda mig við þetta dökka!

fengið þér göt?
neii..

tattú?
 já fékk mér eitt!

breytt ímynd þinni?
neii.. held ekki!

saknað einhvers?
já mjög mikið!

veistu hvað þú vilt í framtíðinni?
neii.. ég er ekki viss!:/

sérðu eftir einhverju?
jáa!
 

Svo bara ball með Geirmundi á morgun í Árgarði:D
þar verður gaman:)

 

Svo fer ég til Akureyrar á sunnudaginn og ég og Signý förum að koma okkur fyrir í herb. 5221:)

 

En hætt! Farin út!

Bææ:)

 

-Sigurlína


» 25 hafa sagt sína skoðun

04.01.2008 20:25:29 / slina

Nýtt, nýtt!

Jááá ég ákvað að búa mér til hérna nýja heimasíðu fyrst ég er að fara svona á akureyri og svona:) svo mamma geti fylgst með mér;)

ætla reyna að standa mig með þetta:)

 


» 3 hafa sagt sína skoðun


Heimsóknir
Í dag:  7  Alls: 18849
Dagatal
maí - 2012
S M Þ M F F L
12345
6789101112
13141516171819
20212223242526
2728293031
FyrriNæsti
RSS tengill
Klukkan